Hver er ég

The diary of..

14.01.2010 20:58:32 / liljasig

Speees!

Jæja gott fólk!! Ákvað að kíkja aðeins á þessa blessuðu bloggsíðu svona einu sinni, held ég hafi ekki gert það síðan seinasta sumar eða eitthvað, og viti menn það eru 56 heimsóknir á síðuna í dag!! WTF!!!  Er varla að trúa þessu... :!:

En litla hjartað mitt gleðst samt pínu yfir þessu :p  Það er gaman að vita að fólk er að fylgjast með manni, þótt það sé bara til að fá smá slúður ;)

Hver veit nema ég byrji að blogga aftur, tala nú ekki um ef ég kemst inn í Berklee College of Music því þá flyt ég til Boston næsta haust og verð í námi næstu 4-5 árin 8)  Fór í audition&interview í desember og gekk bara nokkuð vel!  Verð allavega soldið mikið vonsvikin ef ég kemst ekki inn, en ég fæ að vita það í seinasta lagi 31.janúar.

Annars er bara sama gamla að frétta; vinn í ZARA í Smáralind og á skemmtistaðnum BARBARA aðra hverja helgi og reyni inn á milli að eyða tíma með fjölskyldu og vinum.  Þó hefur fjölskyldan fengið meirihlutann af tíma mínum seinustu mánuði enda nóg búið að vera í gangi... En sem betur fer vinnast hlutirnir vel og maður getur ekki verið annað en ánægður með lífið :)

Peace!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2009 22:57:35 / liljasig

Góðir dagar :o) og slæmir dagar...

Seinustu vikuna hef ég átt ansi góða daga, og átt ansi slæma daga.  

Góður dagur; 
Ég fékk stöðuhækkun í vinnunni og frá og með 1.júlí verð ég aðstoðarverslunarstjóri barnadeildarinnar í Zöru Smáralind :D:D:D:D
Ég fór í eitt flottasta stúdíó landsins að taka upp trommur og bassa fyrir nýja lagið mitt.  Fékk að vinna með snilldar hljóðfæraleikururm og heppnaðist þetta betur en ég þorði að vona :D 

Slæmur dagur;
Síminn minn dó um morguninn þegar ég var að slökkva á vekjaraklukkunni og eftir að hafa reynt allan daginn að kaupa mér nýjan síma þá endaði það með því að ég fór heim um kvöldið, símalaus, vekjaraklukkulaus og soldið stressuð yfir því hvernig ég átti að vakna í vinnuna daginn eftir :$
Þegar ég var við það að mæta í upptökur á nýja laginu fæ ég talhólfsskilaboð um það að harði diskurinn sem geymdi demóið var við það að hrynja og var ekkert víst hvort það væri hægt að bjarga því.  Það þurfti því að fresta upptökunum og jafnvel byrja upp á nýtt á laginu... :S

Góður dagur;
Manchester hóf frábæra helgi með því að vinna englandsmeistara titilinn og var því vel fagnað hérna á heimilinu :haha::haha::haha: 
Við pabbi nutum lífsins í góða veðrinu, stússuðumst smá í bænum og enduðum við svo upp í sumarbústað :)
Ísland lenti í 2.sæti í Eurovision og lagið sem ég hélt með í því fyrsta :D 

Overall góð vika :)  Hlakka til helgarinnar og held að góðu dagarnir verði ennþá fleiri á næstunni ;)
--------------------------------------------------------------------------------

Lagalistinn; 
Fairytale - Alexander Rybak
Is it True - Jóhanna Guðrún
Boom Boom Pow - Black Eyed Peas

Fólkið; 
Una Lind, Ingunn, Elín og Kristín Brynja

Setningin;
"Ég veit það ekki!  Gerðu bara það sem þú vilt :p"


Myndin;

Smá upprifjun síðan á sjómannadaginn í fyrra..  Maður er farinn að hlakka ansi mikið til :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 00:39:34 / liljasig

Blessuð börnin :o)

Það hafa ansi mörg börn fæðst inn í líf mitt og minna nánustu á seinustu dögum og vil ég enn og aftur óska þeim hjartanlega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn :D  Maður getur ekki annað en verið ánægður með lífið á þeim tímapunkti þegar maður heyrir að ættingjar/vinir eru að eignast heilbrigð börn.  Fær mig allavega alltaf til að hinkra aðeins og horfa á það hversu æðislegur þessi heimur getur nú verið :)

--------------------------------------------------------------------------------
Bókin;
Pro Tools - Introduction

Lagalistinn; 
Vetrarsól - Ragnheiður Gröndal
Cry - Rihanna
Feeling Good - Michael Buble
I Hate this Part - Pussycat Dolls

Fólkið; 
Ingunn og Þórir 8)

Setningin;
"Hann er heitur! En Edward er samt sætari ;)"

Myndin;
Ég og nýja hárið :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2009 19:58:53 / liljasig

Skólinn - Gummi Jóns & Magnús Þór

Útaf þessum frábæra skóla sem ég er í þá hef ég fengið að hitta og ræða við bæði Gumma Jóns úr Sálinni og Magnús Þór Sigmundsson lagahöfund.  Þeir komu sitthvort kvöldið og sátu lengi á spjalli við okkur um lífið og tilveruna, ferilinn og gáfu okkur góð ráð!  Fyrir mig, sem er að stíga mín fyrstu skref í lagasmíðum þá er þetta þvílíkt góð reynsla og maður lærir mikið á því að hlusta á þá og spurja þá spjörunum úr. 

Eins og í öllu öðru þá er þessi bransi ekki alltaf auðveldur og var ágætt að heyra frá þeim hversu erfitt þetta getur verið!  En ég held að það sé nauðsynlegt að ganga í gegnum það að ganga illa, alveg eins og það þroskar mann líka að ganga vel.  Aðalatriði er bara að halda báðum fótum á jörðinni og gleyma sér ekki í hæpinu...

Þeir sem nenntu að lesa, hafið það gott :)

--------------------------------------------------------------------------------
Bókin;
Ljóð Tómasar Guðmundssonar

Lagalistinn; 
Chasing Pavements - Adele
Decode - Paramore
Fly on the wall - Miley Cyrus
Inní mér syngur vitleysingur - Sigur Rós

Fólkið; 
Foreldrar mínir því þau eru svo frábær :D

Setningin;
Herkjilís, Herkjilís, Herkjilís (með tilheyrandi klappi :p)

Myndin;

Þennan daginn er það Árdís snillingur sem stillti sér svona flott upp með Loga B vini sínumm á árshátíð Haga 2009 ;)




» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 23:07:10 / liljasig

Skólinn - Fyrsta demóið

Í seinustu viku mætti ég í skólann í "einkatíma" hjá Þorvaldi Bjarna og var komið að því að taka upp demó af lagi sem ég á svo að fullvinna.  Það að vinna lag frá A-Ö hefur alltaf verið hluti af náminu og var ég búin að hugsa um það vel og lengi hvaða lag af þessum mörgum tugum sem ég á ég ætti að velja.  Það var reyndar alltaf ætlunin hjá mér að taka lagið mitt, Ég á mig ein frekar fljótlega í þessu ferli og endaði það svo með því að ég ákvað að spila það fyrir Þorvald.  Það tók nú smá tíma fyrir mig að þora að spila fyrir framan hann, enda sá ég hann í anda sem einn af þremur Idol dómurunum og er ég ekki sú sterkasta í að díla við svoleiðis stress :p  En ég lét mig hafa það að lokum og var hann bara ánægður með :)  Reyndar fannst honum lagið fulllangt, sem það er, enda hafði ég ansi margt að segja ;)  En þegar ég skoðaði þetta betur þá var ég sammála honum í því að stytta lagið um heilt erindi, bæði til að gera það útvarpsvænna og einnig til að halda spennunni gangandi.  Lög mega helst ekki vera of löng því þá er svo mikil hætta á að sá sem hlustar missi athyglina.

Þegar ég var búin að spila lagið í gegn þá var komið að því að gera demó!  Annað demóið mitt af ó svo mörgum ;)  Við Gunna Maggý (hin stelpan í þessu námi) ætlum að vinna lagið mitt saman og vorum við ekki lengi að koma laginu á tölvutækt form og setja örlitla útsetningu á það.  Tíminn sem við höfðum kláraðist aðeins of fljótt og tók ÞB við laginu til að vinna aðeins í því.  Ég var ekkert rosa bjartsýn þegar ég fór frá stúdíóinu þennan daginn, örugglega eitthvað spennufall í mér eftir að hafa komið laginu frá mér og yfir á einhvern annan.  En þegar ég mætti svo aftur núna á mánudaginn þá snerist ég alveg 180° og núna er ég rosa jákvæð og ánægð :D 

Þorvaldur en náttúrulega bara snillingur!! Maður hefur nú alltaf vitað það en að fá að vinna með honum er þvílíkur heiður og er þessi reynsla eitthvað sem á alltaf eftir að muna 8)  Ég hlakka ROSALEGA til að fá að deila laginu með fjölskyldu og vinum!!! Það ætti ekki að vera langt í það, mesta lagi mánuður í að lagið verði fullunnið :d  

Þeir sem nenntu að lesa, hafið það gott :)

--------------------------------------------------------------------------------
Bókin;
Twilight serían eins og hún leggur sig.

Lagalistinn; 
Supermassive Black Hole - Muse
Untouched - The Veronicas
Potential Break Up Song - Aly and AJ
Girls just wanna have fun - Miley Cyrus

Fólkið; 
Ingunn og Elín og allar hinar Zöru skvísurnar.  Tel mig vera einstaklega heppna að hafa kynnst öllu þessu frábæra fólki sem ég deili lífinu með þessa dagana :D

Setningin;
Hildur, ertu ólétt??!?!?! ;)

Myndin;
Í þetta skiptið eru það Ingunn, Þórir og Elín ;)  Frábært lið og snilldar móment :p 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 20:23:25 / liljasig

Kæra dagbók :o)

Ég skil ekki alveg afhverju það eru ennþá um 100 heimsóknir á síðuna á hverjum degi 8|  En það hafa kannski einhverjir vitað það að ég gæti ekki haldið mig frá þessu of lengi, og haft rétt fyrir sér ;)  Ég ætla nefnilega að halda áfram með þessa blessuðu síðu, en þó aðeins að breyta um stíl.  

Ég hef verið að skoða gamlar færslur, t.d. síðan ég var út í London og svo þegar ég var í Argenínu og ég mér finnst æðislega gaman að geta lesið það sem var í gangi og rifjað upp allt það skemmtilega sem gerðist.  Einnig vakna upp tilfinningar þegar maður man sumt sem var erfitt en á sama tíma þroskaði mig og mótaði mig í þá manneskju sem ég er í dag!  Allar mínar tilraunir til að halda dagbók hafa ensta að meðaltali í 2 daga og þá gefst ég upp.  Þessi síða virðist hafa haldið sér í fjöldamörg ár sem mín eiginlega dagbók, og ég á vonandi eftir að geta haft aðgang að að eilífu, og þess vegna ætla ég að halda aðeins áfram :p 

Það getur vel verið að ég skrifa eitthvað sem kemur engum við nema mér, en svo lengi sem ég er ekki að særa neinn annan, eða valda neinum vandamálum þá held ég þessu áfram.  Reyndar hef ég líka ákveðið að ef heimsóknir á síðuna eru fleiri en 300 marga daga í röð þá ætla ég að læsa síðunni, því þá eru alltof margir sem ég þekki ekki neitt farnir að skoða þetta og það finnst mér ekkert svo sniðugt.

Allavega, búin að koma þessu frá mér!  Og fyrsta alvörufærslan birtisti örugglega fljótlega.  Þó lofa ég engu, enda ætla ég bara að skrifa þegar mér finnst ég hafa eitthvað skemmtilegt að muna í framtíðinni og oft eru langar pásur á milli þeirra stunda....

Þeir sem nenntu að lesa, hafið það gott :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2009 20:17:21 / liljasig

Föstudagurinn 3.apríl

Hæ hæ,

Vil bara láta vita að ég ætla taka mér smá pásu frá blogginu... skrifa kannski eitthvað ef ég fæ löngunina til, en hún hefur ekki verið til staðar lengi.

Vonandi hafið þið það gott :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2009 20:47:58 / liljasig

Föstudagurinn 27.mars

Blogg já?!??!?!!

Veit ekki afhverju en ég er bara rosalega blogglaus þessa dagana :p  Ég gæti nú svosem skrifað allskonar!

Gæti t.d. farið að skrifa um (og reyna að neita) kjaftasögur sem ég hef verið að heyra, en finnst það hálftilgangslaust enda læt ég flest svolleis kjaft... sem vind um eyrun þjóta :)   Lærði það "the hard way" að það þýðir ekkert að hlusta á allt það sem er sagt um mann og manns nánustu, maður yrði á endanum geðveikur! Best að ignora það bara 8)

Ég gæti líka skrifað um skólann en er hrædd um að það gæti komið annað hvort út sem boring, ruglingslegt eða sem "mont" að minni hálfu.8|  T.d. það sem ég get sagt um skólann þessa vikuna er að það er búið að vera ÆÐISLEGT :D  Við erum búin að læra allskonar um tengingar í stúdíóum, og líka fullt um að gera upptökur að "útvarpshæfum" lögum.  Fengum t.d. 2 þekkt íslensk lög, fengum aðgang að upprunalegu upptökunum (algerlega hrátt sem er soldið spes 8|) og áttum við svo að gera þau útvarpshæf eins og okkur fannst passa.  Væri alveg til í að nefna þessi lög en finnst það ekki við hæfi... 

Að vera uppí stúdíói getur verið soldið súrrealískt, enda hittir maður á hverjum degi "heimsfræga" Íslendinga og fær að vita margt um það sem er á döfinni í íslensku tónlistarlífi!  En again, finnst kannski ekki við hæfi að nefna nein nöfn....

Þessa helgina er maður að vinna, sem er ágætt :)  Fer svo í fermingu á sunnudag, held það sé bara eina fermingin sem ég fer í í ár 8|  Ekki oft sem þær eru færri en 2... 

Annað kvöld eru nokkrir Patrónar, sem ekki eru á leið vestur á árshátíð fyrirtækjanna, að plana að fara á ball með vinum okkar í Sólon 8)  Þeir eru að spila á Fjörukránni í Hfj í tilefni þess að Tóti trommari (snillingur) á afmæli :d  Það verður án efa mjög gaman enda hef ég aldrei farið á ball með þeim sem er ekki unaðslega skemmtilegt :)

En já, kannski ágætis blogg!  Þarf kannski bara oftar að byrja að skrifa eitthvað, þ.e. þegar ég hef ekkert annað að gera ;) það virðist alltaf enda með ágætis færslu :p

Eigið góða helgi :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 22:36:44 / liljasig

Mánudagurinn 16.mars

Var að koma heim úr skólanum... ekki búin að komast í viku og var skíthrædd um að hafa dregist geðveikt aftur úr!  Svo mæti ég og okkur tilkynnt það að við höfum bara frjálsar hendur þarna upp í stúdíói... megum bara gera það sem við viljum 8|  Það er ekki erfitt að missa sig þarna inni skal ég segja ykkur :p  GEÐVEIKT stúdíó með öllum þeim græjum sem manni dettur í hug!!! Við ákváðum því að leika okkur aðeins og taka upp demó, endaði svo með því að ég var sú sem fann lag til að taka upp, söng það OG spilaði á gítar 8)  Strákarnir voru svo í því að tromma og mixa og var þetta bara orðið nokkuð nett demó sko :p  Hefði auðveldlega getað verið þarna í alla nótt að leika mér!  Sem betur fer er stutt í næsta tíma ;) Þetta er aðeins of gaman sko :p

Helgin var rosa fín!  Fór út að borða með familíunni á Grand hótel á fimmtudeginum...alltof góður matur þar á ferð!  Kíkti aðeins út á föstudagskvöldið, vann á laugardaginn og svo ákváðum við Magnús að skella okkur upp í Grímsnes í bústað til mömmu og pabba sem voru þar.  Verð nú að segja að sú ákvörðun að fara þangað hafi verið sú besta sem ég hef fengið lengi 8)  Þegar við komum var mamma búin að elda dýrindis máltíð, svo sátum við og spiluðum þangað til það var lagst inn í rúm að lesa.  Sofnaði reyndar alltof fljótt yfir bókinni en maður var alveg úthvíldur á sunnudeginum :d  Við Magnús brunuðum svo í bæinn og beint í pönnsur til ömmu þar sem fullt af liði var mætt!  Ég stoppaði reyndar ekki lengi heldur fór í heimsókn í Hafnarfjörðinn að hitta hann Bjarka, sem ætlar að spila undir hjá mér á árshátíð á næstu helgi.  Við náðum loksins að æfa okkur aðeins, er búin að vera svo raddlaus að það hefur ekkert gengið, en ætlum svo að nota næstum hvert kvöld í þessari viku til að fullkomna þetta, þ.e. eftir skóla hjá mér...  Í gærkvöldi var svo farið út að borða með stórfjölskyldu Kristjáns litla og er það alltaf jafn notalegt :)

Annars er bara allt gott að frétta! Vona að allir hafi það gott :)

p.s.
Ég var að horfa á aukaefni á Sex and the City the Movie disknum og tók þá eftir einum kalli sem var producer, sem var alveg eins og leikarinn sem leikur Denny Duquette í Grey's Anatomy!  Það er kannski ekkert merkilegt nema að fyrir ennþá lengra síðan tók ég eftir því hvað sá leikari var alveg eins og annar leikari Javier Bardem!! Sver það þessi þrír menn hafa verið aðskildi í fæðingu eða eitthvað!  Eða hvað finnst ykkur... ;





Og þeir eru sko ennþá líkari þegar maður sér þá "live"!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 15:23:01 / liljasig

Þriðjudagurinn 10.mars - held ég

Þá er ný vika hafin, ný veikindavika :S  Ekki það skemmtilegasta :cry:  En ég virðist vera hrikalega viðkvæm fyrir pestum sem eru að ganga og í þetta skiptið er það barka- og barkakýlisbólga :$  Lítið hægt að gera annað en að hvílast, drekka nóg og ekki tala!  Þá er nú gott að hafa facebook til að halda sér félagsskap.... :p  En ekki það besta sem gerist þegar maður vinnur í afgreiðslustarfi :( 

Ég átti ágætis helgi :)  Vaknaði reyndar á laugardagsmorguninn með hæsi, sem var alveg perfect þar það var búið að plana söngæfingu þann daginn!8|  Það er nefnilega þannig að ég er að fara að syngja á árshátíð Zöru (eða Haga) þann 21.mars 8)  Hvert fyrirtæki á víst að koma með eitt skemmtiatriði og þar sem einhverjar í vinnunni höfðu heyrt mig syngja þá var það bara ákveðið.  Það þýddi ekkert að segja nei við því svo að ég ákvað að slá til!  En svo kemst ég að því fyrir nokkrum dögum að ég verð víst EINA skemmtiatriðið!!!!! 8|  Þá höfðu allir hinir beilað og því ekki séns fyrir mig að beila :$  Ég varð því bara að gera atriðið ennþá flottara, sem það verður vonandi ef ég fæ tækifæri til að æfa mig aðeins!

Á sunnudaginn skrapp ég á Skagann, eitthvað sem ég hef ætlað að gera í langan tíma en alltaf eitthvað komið upp á; þynnka, vinna eða tímaleysi...  Það var rosa fínt að kíkja uppeftir!  Fékk góða heimatilbúna máltíð hjá tengdarforeldrum systur minnar og geðveikan ís í eftirrétt ;)  Ég var reyndar byrjuð að vera soldið slöpp og fór því snemma heim, og hélt í alvörunni að ég myndi deyja á leiðinni heim 8|  Það var svo HRIKALEGA hvasst á leiðinni að ég hef ALDREI lent í öðru eins!  Á kaflanum frá Mosó og að Grundarhverfinu hélt ég dauðahaldi í stýrið á bílnum og ákallaði guð!  Það munaði ekki svo miklu að bíllinn hefði fokið af stað, fann hann lyftast á tímabili, og var ég dauðfeginn að komast í borgina aftur!

Í gærmorgun vakna ég, eftir að hafa sofið illa, að kafna úr eigin hori, röddin eiginlega alveg farin og hóstandi eins og ég eigi lífið að leysa :cry:  Ég náði að hringja mig inn veika í vinnuna, reyndi svo að sofa aðeins meira, og hringi svo í lækni til að fá tíma.  Það er alltaf sama vesenið á því að vera að fara til læknis hérna í Reykjavík, þar sem að ég er með lögheimili út á landi!  Hef reyndar nokkrum sinnum fengið tíma þegar ég hef bara mætt á heilsugæsluna að deyja :$  En annars er eini sénsinn að mæta bara milli 16 og 18 og "taka númer" 8|  Beið bara í 1 og 1/2 tíma í gær eftir því að komast að!  Alveg það skemmtilegasta sem maður gerir þegar maður er veikur :( 

En læknirinn sagði nú ýmislegt áhugavert;  auk þess að vera með þetta barkabólgudrasl þá var ég með roða í hálskirtlum... Uuuuu What?!?!!? en ég er ekki með hálskirtla!  Fór í hálskirtlatöku í júní, ekki eitthvað sem maður gleymir í bráð...  Nei nei það er nóg eftir þarna, segir læknirinn!  Rétt bara búið að klipp efsta hlutann af!!!!!!?!?!??!?!?!?!  Smá sjokk sem fylgdi þessum fréttum, og er ég ennþá svoldið eftir mig, veit ekkert hvort þetta er eðlilegt.  Getur varla verið þar sem að læknirinn var varla að trúa mér þegar ég sagðist hafa farið í aðgerðina, og svo þegar ég googlaði þetta í gær (hvað annað:p)  þá sá ég að hálskirtlar geta vaxið aftur ef þeir hafa ekki allir verið fjarlægðir!!!!!!!!!  What the f***?!?  Ætla sko ekki að fara í gegnum þessa aðgerð aftur!  Fór jú í hana til að koma í veg fyrir öll þessi veikindi mín, og sú staðreynd að það eru ennþá eftirstöðvar af kirtlum þarna skýrir vel afhverju ég er ennþá alltaf veik :whut:  Æji ég veit ekki neitt hvað er í gangi sko....

Allavega, hef þá náð að "tjá" mig slatta í dag án þess að óhlýðnast fyrirmælum doksa ;)  Vona að allir hafi það gott!


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 20:53:36 / liljasig

Laugardagurinn 28.febrúar

First of all... þá verð ég nú aðeins að "kommenta" á öll þessi "komment" ykkar gott fólk!  Eða frekar, "lack there of"!!!  Það væri alveg æðislega gaman að fá eitt og eitt komment inn á milli 8)  Það er alltaf jafn gaman að vita aðeins hverjir eru að fylgjast með manni :p (og þeir sem kommenta alltaf, takk fyrir og endilega halda því áfram ;)  *hóst hóst.. Hróðný ;) )

Þessi vika var frekar róleg!  Fékk frí í skólanum á fimmtudagskvöldið og ákvað því að nota tækifærið og bjóða patró skvísunum í heimsókn.  Það var æðislega gaman að hitta þær, eins og alltaf, en ennþá skemmtilegra var að ég bakaði!! Já dömur mínar og herrar! Lilja bakaði heila súkkulaðiköku 8)  Reyndar var þetta Betty Crocker, og ég þurfti mikla aðstoð frá henni Steinunni skvísu (hún gerði eiginlega allt :p) en ég er rosa stolt af sjálfri mér og finnst eins og flestir aðrir ættu að vera það líka ;)

Í gærkvöldi ákváðum við Una að hafa kósý kvöld.  Hún kom til mín beint eftir vinnu hjá sér, og var ég þá tilbúin með osta, snakk og nammi (og slash af hvítvíni ;) ) Við borðuðum yfir okkur af því á meðan við horfðum á Ungfrú Reykjavík, gagnrýnandi hvern krók og kima af stelpunum á meðan við fitnuðum með hverri sekúndunni sem leið 8)

Eftir allt átið langaði Unu að prófa Wii tölvuna okkar, þannig ég setti Guitar Hero í gang og skemmtum við okkur langt fram á nótt yfir því ;)  Una var alveg að brillera í þessu :p  var að prófa í fyrsta skiptið og gat ég ekki annað en tekið myndir af þessari frábæru sjón ;)  Ég set þær inn á Facebook við tækifæri :p

Annars er ég núna öll dressuð upp og tilbúin til að fara í afmæli!  Stefnan er svo sett heim til vinkonu minnar áður en við kíkjum líklegast í bæinn :)  Ég verð nú bara róleg í kvöld, enda er ég að fara að vinna aftur á morgun.  Mikið af fólki búið að fá útborgað og býst ég við því að það verði nóg að gera... 

En þangað til næst, hafið það gott :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.02.2009 23:33:32 / liljasig

Miðvikudagurinn 25.febrúar

Það er ótrúlega skrítið eftir að ég fékk mér Facebook, þá finnst mér ég ekki hafa neitt að blogga um!  Enda er maður alltaf að updeita statusinn sinn á hinni síðunni og finnst þá eins og fólk sé bara að fylgjast með manni jafnóðum sem allt gerist :p  Ég hef samt ákveðið að halda áfram með þessa síðu, enda vel sótt ennþá þrátt fyrir "dauða" bloggsins 8)

Við hérna í Vesturberginu vorum að fá nýjan sófa 8) Loksins!!!!  Hinn var orðinn alveg útslitin og gamall, enda búin að vera hérna síðan ég man eftir 8|  En nýinn sófinn er æði! Tungusófi, fallega vínrauður á litinn og ekta kúrusófi!!! og heavy þægilegur :)  Það verður fínt að prófa hann á morgun þegar nokkrar patró skvísur ætla að kíkja í heimsókn.  Hver veit nema ég hendi í eina Betty ;)  Hef reyndar aldrei gert það áður en Steinunn hefur víst fulla trú á mér í þessu!  Ætti að vera idiot proof.. vonum það allavega :p

Ég er á fullu í því núna á kvöldin að setja inn myndir á Facebook.  Á ROSAlega mikið til af þessu frá 2006 til dagsins í dag, og svo á ég aukalega til frá fólki sem hefur tekið þátt í Ratleikjunum síðustu tvö árin.  Ég ákvað að byrja á því að skella þeim myndum á netið enda rosalega margir Fésbúkkarar á þeim myndum, og margar skemmtilegar myndir að finna þarna ;)  Einnig er til slatti af myndböndum síðan í leikjunum, og spurning hvort það fái að leka á netið líka ;)  Sé til þegar ég hef klárað að setja allar myndirnar inn... tekur þvílíkt langan tíma!! En verður gaman að hafa þarna inni þegar þetta er búið :)

Annars hef ég þetta bara stutt og laggott í dag!  2 blogg á 3 dögum, nokkuð gott ha ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 21:38:46 / liljasig

Mánudagurinn 23.febrúar

Þá er komið að hinu "vikulega" bloggi :S  Er ekkert að standa mig í þessu sem og öðru þessa dagana, en það þýðir ekkert að væla það! Bara spíta í lófana og halda áfram...

Ég átti ÆÐISLEGA helgi!!  Fór í bíó með Siggu vinkonu á myndina He's just not that into you og fannst hún stórfín :D  Ég hló slatta mikið, brosti bara eiginlega allan tímann :p  Og þegar maður fór út þá var maður eiginlega bara með fast bros í langan tíma á eftir :)  Ég hafði nú hugsað mér að fara bara heim eftir bíóið og slappa af en endaði þó á því að kíkja í heimsókn og svo aðeins á Live pub með nokkrum vinum.  Er farin að fara svoldið mikið á þann stað, þó bara með ákveðnum hóp, en það er alltaf gaman :)  Ég hef nú ekki látið verða af því ennþá að taka lagið (fyrir þá sem ekki vita þá er þetta nefnilega kareoke staður) en hver veit!  Kannski einhvern tímann á næstunni, og ef ég finn rétta lagið 8)

Ég og Hildur sem vinnur með mér ræddum það mikið í seinustu viku, hvað það væri nú gott að komast aðeins út úr borginni í nokkra daga.  Við vorum báðar í helgarfríi og ekkert planað þannig ég ákvað að tala við vel valinn aðila, fæ aðgang að sumarhúsi sem er upp í Grímsnesi og ákváðum við að skella okkur og gista eina nótt :) Þegar leið á fóru fleiri að bætast í hópinn, en á endanum vorum við 5 sem gistum, elduðum, drukkum, spiluðum, fórum í pottinn og sögðum draugasögur :p  Eftir draugasögurnar vorum við allar hálfhræddar þannig við enduðum á því að sofa allar saman í tveimur einbreiðum rúmum sem höfðu verið sett hlið við hlið....  röðuðum okkur bara þverrt þannig að þegar við vöknuðum var rassinn á flestum kominn á milli, enda rúmin farin að renna í sundur :p  En við sváfum samt sem áður mjööög vel og var þetta æðislega skemmtileg kvöld!  3 okkar sem þurftu ekki að bruna aftur suður til að fara í vinnu vorum svo bara í rólegheitum að taka til og ganga frá og enduðum svo á því að rúnta aðeins á Selfoss.  Þar stoppuðum við svo á KFC áður en við fórum aftur í borgina, og var maður alveg endurnærður eftir þetta, þótt þetta hafi nú ekki verið langt, eða langur tími! :)

Skólinn gengur vel!  Vorum að byrja aðra vikuna núna og erum ennþá að læra svona basic atriði í Pro Tools (tónvinnsluforrit).  Bækurnar eru ekki ennþá komnar en von er á þeim á næstu dögum og þá fer allt á fullt.  Á morgun mæti ég í einkakennslutíma og fæ í staðinn frí á fimmtudaginn :)  Var jafnvel að pæla í að bjóða þá nokkrum Patró skvísum í heimsókn, á bara eftir að heyra aðeins í þeim!  En endilega kommenta ef ykkur líst vel á ;)

Annars hef ég bara lítið að segja!  Vona að allir hafi það gott :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 21:28:06 / liljasig

Mánudagurinn 16.febrúar

Var að koma heim úr skólanum, fyrsti dagurinn í dag, og líst mér bara ennþá betur á þetta allt saman ;)  Ég þarf reyndar að fjárfesta aðeins meira, í smá tölvuforriti til að geta æft mig heima, ætla sko að halda mínu nördastriki áfram og vera hæst í bekknum ;)  Þýðir ekkert annað :p

Ég mætti í vinnu á laugardaginn, loksins! Var orðin aðeins oooof pirruð á því að þurfa að hanga heima.  Eftir vinnu fór ég heim og ætlaði bara að koma mér vel fyrir í sófanum með nammi og horfa á TV-ið.  En áður en ég komst heim hringdi pabbi í mig, hann og Magnús voru rétt ókomnir í Rvk og ákváðum við að kíkja eitthvað að borða.  Fórum á Gallerý fisk, það bregst aldrei, og svo heim að horfa á Eurovision.  Hvítvínið sem við drukkum með matnum var þá eitthvað farið að kikka inn og ákvað ég að kíkja aðeins út :p Við Magnús kíktum aðeins í heimsókn og endaði það kvöld bara á miðbæjarferð og skemmtilegheitum 8)  Mjööög svo skemmtilegt kvöld :D

Gærdagurinn fór svo í leti, eins og sönnum sunnudögum sæmir ;)  Vikan lofar góðu!  Vona að þið hafið það gott :)




» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 166354